Sumardagurinn fyrsti í Kópavogi

Frítt í sund í Kópavogi sumardaginn fyrsta.
Frítt í sund í Kópavogi sumardaginn fyrsta.

Kópavogsbær býður frítt í sund í tilefni sumardagsins fyrsta, 20. apríl og er opið í Salalaug og Sundlaug Kópavogs frá 08.00 til 18.00.

Þá eru ýmsir skemmtilegir viðburðir eru í menningarhúsum bæjarins enda stendur Barnamenningarhátíð yfir.

Frítt er inn á Gerðarsafn en sýningin Þú hefur orðið opnar Sumardaginn fyrsta en á henni má sjá verk eftir unglinga í Kársnesskóla. 

Aðrir viðburðir

13.00-14.00: Í Smáralind verður klippimyndasmiðja í tengslum við sýninguna Náttúran sem sögupersóna, sem er tengist Vatnsdropaverkefninu.

12.00 -16.00: verður listasmiðjan Friðartjaldið í Bókasafni Kópavogs. 

15.00-15.30: Krakkaleiðsögn í Gerðarsafni.

Viðburðir á Barnamenningarhátíð