Gámar fyrir jólatré aðgengilegir til 13.janúar

Gámar fyrir gömul tré eru á fimm stöðum í bænum.
Gámar fyrir gömul tré eru á fimm stöðum í bænum.

Gámar fyrir jólatré verða í hverfum bæjarins til og með 13. janúar.  

Gámarnir eru á eftirfarandi stöðum:

Kársnes, við Vesturvör 14

Digranes, við íþróttahúsið Digranesi

Smára- og Lindahverfi, neðst á Glaðheimasvæðinu, gegnt Álalind 2.

Sala- og Kórahverfi, við garðlönd, Rjúpnavegur/ Arnarnesvegur

Þinga- og Hvarfahverfi, á bílastæði við Vallakór 8

Fyrirkomulagið er nýtt hjá Kópavogsbæ.

Lesa frétt um breytt fyrirkomulag jólatréshirðingu.