Gengið gegn einelti

Börnin mótmæla einelti
Börnin mótmæla einelti

Um fimm þúsund börn og unglingar úr Kópavogi gengu gegn einelti í morgun í öllum skólahverfum bæjarins. Leikskólabörn, grunnskólabörn og unglingar úr félagsmiðstöðvum leiddust og báru hvatningarspjöld með slagorðunum:  Ekki stríða, Verum vinir og Leikum saman svo dæmi séu nefnd.

Tilgangurinn er að  vekja athygli á því ofbeldi sem einelti er og að það sé aldrei réttlætanlegt. Þetta er í fyrsta sinn sem Kópavogsbær tekur þátt í degi eineltis, 8. nóvember, með svo afgerandi hætti.

Að lokinni eineltisgöngu hittust hóparnir í sínum skólahverfum og dönsuðu, sungu eða skrifuðu nafn sitt undir sáttmálsörk.

Allir eru sammála um að átakið í Kópavogi hafi heppnast með eindæmum vel og er nú talað um að endurtaka leikinn að ári.

Fleiri myndir frá deginum má finna á Facebook-síðu Kópavogsbæjar.