Grænlensk börn læra að synda í Kópavogi

Ármann Kr. Ólafsson tekur í hendur barnanna
Ármann Kr. Ólafsson tekur í hendur barnanna

Þrjátíu ellefu ára börn frá litlum þorpum á austurströnd Grænlands hafa að undanförnu dvalið í Kópavogi þar sem þau hafa m.a. lært að synda. Börnin eru hér á landi á vegum Kalak, vinafélags Íslands og Grænlands, í góðu samstarfi við menntasvið Kópavogsbæjar. Þau hafa m.a. hitt jafnaldra sína í Kópavogi og á dögunum heilsaði bæjarstjóri Kópavogs, Ármann Kr. Ólafsson, upp á þau, þar sem þau voru í hádegishléi á hamborgarastað.

Með börnunum eru sex fararstjórar og kennarar og fylgja þau skipulagðri dagskrá á hverjum degi, eftir skóla og sund. Þau búa við fábrotnar aðstæður á Grænlandi og hafa lært margt nýtt og athyglisvert í heimsókn sinni til Íslands.

Þau gista í Kópavogi en hafa m.a. farið í Húsdýragarðinn, skoðað Gullfoss og Geysi og fengið leiðsögn um sali Alþingis. Þá sáu þau um daginn hesta í fyrsta sinn.
 
Alls dvelja þau á Íslandi í tvær vikur.