Grímuskylda afnumin fyrir 5.-7.bekk

Grímuskylda barna í 5.-7.bekk verður afnumin frá og með 18.nóvember.
Grímuskylda barna í 5.-7.bekk verður afnumin frá og með 18.nóvember.

Börn í 5. – 7. bekk grunnskóla verða undanþegin grímuskyldu og 2 metra nálægðartakmörkunum, líkt og yngri börn í grunnskóla og leikskólabörn. Grímuskylda kennara gagnvart þessum börnum verður einnig afnumin. Skýrt verður kveðið á um að á útisvæðum leik- og grunnskóla séu engar kröfur sem hindra blöndun hópa, né kröfur varðandi fjöldatakmarkanir, nálægðartakmarkanir eða grímunotkun.

Heilbrigðisráðherra hefur ákveðið þetta í samræmi við tillögur sóttvarnalæknis og í samráði við mennta- og menningarmálaráðuneytið. Reglugerðarbreyting þessa efnis verður birt í Stjórnartíðindum á morgun.