Hefðbundið skólahald frá 4. maí

Dregið úr takmörkunum vegna Covid-19 frá 4. maí.
Dregið úr takmörkunum vegna Covid-19 frá 4. maí.

Opnað verður fyrir hefðbundið skólahald í leik- og grunnskólum frá 4. maí samkvæmt ákvörðun heilbrigðisráðherra sem kynnt var á blaðamannafundi í dag, þriðjudaginn 14. apríl. Ákvörðun ráðherra er í samræmi við tillögur sóttvarnalæknis sem gerð er ítarleg grein fyrir hér á eftir.

Unnt verður að opna framhalds- og háskóla á ný með takmörkunun, fjöldamörk samkomubanns verða hækkuð úr 20 í 50 manns, heimilt verður að hefja á ný ýmsa þjónustu, svosem á hárgreiðslu- nudd- og snyrtistofum, tannlæknar geta tekið til starfa og söfn geta opnað á ný fyrir viðskiptavinum sínum.

Rúmlega 1700 manns hafa greinst með COVID-19 hér á landi og rúmlega hundrað manns lagst inn á sjúkrahús af völdum sjúkdómsins. Eins og fram kemur í minnisblaði sóttvarnalæknis til heilbrigðisráðherra hefur nýsmitum farið fækkandi að undanförnu.

Telja megi víst að faraldurinn sé í rénun hér á landi sem þakka megi víðtækum samfélagslegum aðgerðum sem gripið hefur verið til. Sóttvarnalæknir bendir á að samfélagslegt smit sé lítið eða innan við 1% samkvæmt sýnatökum Íslenskrar erfðagreiningar. Það þýði að ef slakað er um of á gildandi takmörkunum skapist hætta á að faraldurinn blossi upp aftur. Sóttvarnalæknir leggur því til að slakað verði á takmörkunum í skrefum sem endurskoðuð verði með þriggja til fjögurra vikna millibili.

Helstu breytingar sem verða 4. maí næstkomandi:
Fjöldamörk samkomubanns miðast við 50 einstaklinga í stað 20 áður. Reglur um tveggja metra fjarlægð haldast óbreyttar.

Skólastarf í leik- og grunnskólum verður með eðlilegum hætti.

Í framhalds- og háskólum gildir meginreglan um hámark 50 einstaklinga í sama rými.

Ýmis þjónusta: Hárgreiðslustofur, nuddstofur, sjúkraþjálfun, snyrtistofur, söfn og sambærileg starfsemi geta hafið starfsemi en halda skal 2 m fjarlægð milli viðskiptavina eins og kostur er.

Heilbrigðisþjónusta: Öll heilbrigðisstarfsemi sem ekki felur í sér valkvæðar skurðaðgerðir eða aðrar ífarandi aðgerðir verður heimil. Tannlækningar verða einnig heimilar.

Skipulagt íþróttastarf barna á leik- og grunnskólaaldri verður heimilt utandyra með eftirfarandi takmörkunum:

Ekki fleiri en 50 einstaklingar verða saman í hóp.
Halda skal tveggja metra fjarlægð eftir því sem það er unnt, einkum hjá eldri börnum.

Annað skipulagt íþróttastarf er heimilt utandyra með eftirfarandi takmörkunum:

Ekki fleiri en fjórir einstaklingar æfa eða leika saman.
Snertingar eru óheimilar og halda skal tveimur metrum á milli einstaklinga.
Notkun á sameiginlegum búnaði skal haldið í lágmarki en annars skal sótthreinsa hann á milli notkunar.

Nokkur atriði sem haldast óbreytt:

Undanþágur fyrir efnahagslega mikilvæg fyrirtæki verða óbreyttar.
Líkt og hingað til verður heimilt að taka á móti 100 einstaklingum í matvöruverslunum og lyfjaverslunum hverju sinni að uppfylltum tilteknum skilyrðum.
Sundlaugar og líkamsræktarstöðvar verða áfram lokaðar.
Reglur um skemmtistaði, krár, spilasali og svipaða starfsemi verða óbreyttar og slíkir staðir því áfram lokaðir.
Fyrirmæli landlæknis frá 23. mars sl. um valkvæðar skurðaðgerðir eða aðrar ífarandi aðgerðir haldast óbreytt.