Heitavatnslokun á höfuðborgarsvæðinu

Lokun á heitavatni 18.-19.ágúst nær til hluta Kópavogs meðal annars.
Lokun á heitavatni 18.-19.ágúst nær til hluta Kópavogs meðal annars.

Lokað verður fyrir heita vatnið á hluta höfuðborgarsvæðisins frá kl. 02:00 þriðjudaginn 18. ágúst til kl. 09:00 miðvikudaginn 19. ágúst n.k.  Lokunin nær til Hafnarfjarðar, hluta Garðabæjar, efri byggða Kópavogs og  Norðlingaholts í Reykjavík. 

Salalaug og Boðalaug verða þess vegna lokaðar þriðjudaginn 18. ágúst og til 09.00 miðvikudaginn 19. ágúst.

Ástæða lokunarinnar er að verið er fjölga heimilum sem fá heitt vatn frá virkjunum á Hellisheiði og Nesjavöllum. Við það þarf að sækja minna af heitu vatni í borholur Veitna í Reykjavík og Mosfellsbæ. Með aukinni notkun á heitu vatni, m.a. vegna fjölgunar íbúa og þéttingu byggðar, hefur álag á jarðhitageyminn sem fæðir borholurnar á lághitasvæðunum aukist og við því verður að bregðast. Með þessari aðgerð er tryggt að þessi mikilvægu lághitasvæði nýtast íbúum höfuðborgarsvæðisins til langrar framtíðar.    

Til þess að mögulegt sé að gera umrædda breytingu þarf að stöðva rennsli og tæma Suðuræð sem er ein af megin flutningsleiðum á heitu vatni á höfuðborgarsvæðinu.   

 Gera má ráð fyrir algjöru heitavatnsleysi á umræddum svæðum á meðan lokun stendur.