Fara í aðalefni

Hirðing jólatrjáa

Kópavogsbær hirðir jólatré frá 7. janúar.
Kópavogsbær hirðir jólatré frá 7. janúar.

Kópavogsbær fjarlægir jólatré dagana 7. janúar til og með 14. janúar. Íbúar sem vilja nýta sér þessa þjónustu eru beðnir um að setja trén út fyrir lóðamörk, með jólatrjám nágranna ef kostur er.

Íbúar eru beðnir um að ganga frá trjánum þannig að þau geti ekki fokið. Skoteldaleifar sem komið hefur verið fyrir hjá jólatrjám verða einnig fjarlægðar. Einnig geta íbúar losað sig við jólatré og skotelda á endurvinnslustöðvum Sorpu án þess að greiða förgunargjald.

Athugið að jólatré eru ekki fjarlægð af Kópavogsbæ eftir 14.janúar.

Fara efst
á síðu
Heim Opna / loka snjalltækjavalmynd
Venjulegt útlit Breyta stillingum