Hringtorg í Kópavogi fá nöfn

Hringtorg í Kópavogi með logo Kópavogs.
Hringtorg í Kópavogi með logo Kópavogs.

Öll hringtorg í Kópavogi hafa nú fengið nöfn. Torgin eru 39 ef með eru talin þrjú sem klára á í sumar. Bæjarstjórn samþykkti nöfnin á síðasta fundi sínum. Með þessu á að auðvelda bæjarbúum og öðru fólki að komast leiðar sinnar. Eftir á að útfæra hvernig torgin verða merkt. Frumkvæðið að nafnagiftinni kom úr umhverfis- og samgöngunefnd.

Nafnanefnd, skipuð embættismönnum og pólitískum fulltrúum, var fengin til að gera tillögur að nöfnum á torgunum. Nöfnin vísa í hverfin sem torgin standa í.

Nöfnin eru: Hamraborg, Borgarholt, Digranes, Þinghóll, Kópavogur, Nýbýli, Lundur, Birkihlíð, Brekka, Smárinn, Nónhæð, Dalur, Holt, Smáratorg, Fífuhvammur, Lindir, Brekka, Einbúi, Salir, Hnoðri, Smalaholt, Leirdalur, Rjúpnadalur, Markasteinn, Baugur, Austurkór, Rjúpnahæð, Kjóavellir, Arnarbæli, Hörðuvellir, Boðinn, Þingnes, Vatnsvík, Kórinn, Þing, Búðakór, Elliðahvammur, Kríunes og Vatnsendi.