Innritun í 1. bekk

Innritun sex ára barna stendur yfir frá 1. til 8. mars.
Innritun sex ára barna stendur yfir frá 1. til 8. mars.

Innritun 6 ára barna (fædd 2012) fer nú alfarið fram í gegnum íbúagátt á vef bæjarins.

Opnað verður fyrir skráningu 1. mars 2018 og stendur hún til 8. mars. Sömu daga fer fram innritun nemenda sem flytjast milli skólahverfa og þeirra sem flytja í Kópavog eða koma úr einkaskólum. Haustið 2018 munu skólar hefjast með skólasetningardegi fimmtudaginn 23. ágúst. Nánari upplýsingar um skólabyrjun munu birtast á heimasíðum skólanna.

Athugið að umsóknir fyrir dægradvöl og mötuneyti fyrir skólaárið 2018-2019 opna í íbúagátt síðar í vor. Nánar auglýst síðar.

Sérstök athygli er vakin á því að um­sóknar­frestur um heimild til að stunda nám í einka­skólum eða grunn­skólum annarra sveit­ar­f­é­l­aga er til 1. apríl og skal sækja um á íbúagátt Kópavogs. Sækja þarf um að nýju fyrir nemendur, sem nú eru í slíkum skólum, ef gert er ráð fyrir að þeir verði þar næsta vetur.

Íbúagátt Kópavogsbæjar.