Innritun í 1. bekk

Ungar stúlkur í leik
Ungar stúlkur í leik

Innritun 6 ára barna (fædd 2011) fer nú alfarið fram í gegnum íbúagátt á vef bæjarins.

Opnað verður fyrir skráningu 1. mars 2017 og stendur hún til 8. mars. Sömu daga fer fram innritun nemenda sem flytjast milli skólahverfa og þeirra sem flytja í Kópavog eða koma úr einkaskólum. Haustið 2017 munu skólar hefjast með skólasetningardegi þriðjudaginn 22. ágúst. Nánari upplýsingar um skólabyrjun munu birtast á heimasíðum skólanna.

Sérstök athygli er vakin á því að um­sóknar­frestur um heimild til að stunda nám í einka­skólum eða grunn­skólum annarra sveit­ar­f­é­l­aga er til 1. apríl og skal sækja um á íbúagátt Kópavogs. Sækja þarf um að nýju fyrir nemendur, sem nú eru í slíkum skólum, ef gert er ráð fyrir að þeir verði þar næsta vetur.

Íbúagátt Kópavogsbæjar.