Íþróttafólk ársins 2018

Á myndinni eru Ármann Kr. Ólafsson bæjarstjóri, Valgarð Reinhardsson fimleikamaður úr Gerplu, Agla …
Á myndinni eru Ármann Kr. Ólafsson bæjarstjóri, Valgarð Reinhardsson fimleikamaður úr Gerplu, Agla María Albertsdóttir knattspyrnukona úr Breiðablik og Jón Finnbogason, formaður íþróttaráðs Kópavogs.

Agla María Albertsdóttir knattspyrnukona úr Breiðabliki og Valgarð Reinhardsson fimleikamaður úr Gerplu og voru kjörin íþróttakarl og íþróttakona Kópavogs fyrir árið 2018.

Kjörinu var lýst á íþróttahátíð Kópavogs í Golfskála GKG 10. janúar. Fengu þau að launum farandbikar og eignarbikar jafnframt því sem Ármann Kr. Ólafsson bæjarstjóri Kópavogs afhenti þeim hvoru um sig 200 þúsund króna ávísun í viðurkenningarskyni frá Kópavogsbæ.

Valgarð og Agla María voru valin úr hópi 40 íþróttamanna sem fengu viðurkenningu íþróttaráðs eftir tilnefningar frá íþróttafélögunum í bænum.

 Valgarð Reinhardsson

Valgarð varð á liðnu ári Íslandsmeistari í fjölþraut á Íslandsmeistaramóti Fimleikasambandsins. Hann varð einnig Íslandsmeistari í fjórum greinum, á svifrá, í hringjum, á tvíslá og á gólfi. Valgarð var einn af burðarstólpunum í liði Gerplu sem sigraði  á Bikarmóti Fimleikasambands Íslands annað árið í röð. Á Norðurlandameistaramótinu hafnaði hann í 6. sæti í fjölþraut og í 2. sæti á tvíslá. Á Evrópumeistaramótinu í Glasgow komst Valgarð svo fyrstur Íslendinga í úrslit í stökki,  sem er frábær árangur hjá þessum unga fimleikamanni. Eftir harða keppni í úrslitum í stökki hafnaði hann að lokum í 8. sæti

Agla María Albertsdóttir

Agla María átti frábært tímabil með liði Breiðabliks 2018, sem er eitt það besta í sögu félagsins, en liðið varð bæði Íslands- og bikarmeistari. Agla María lék alla leiki liðsins bæði í deild og bikar og skoraði í þeim  9 mörk,  ásamt því að leggja upp fjölmörg mörk fyrir samherja sína. Hún lék 10 A-landsleiki á árinu, en liðið var hársbreidd frá því að komast á HM sem fram fer í Frakklandi á þessu ári. Þessi 19 ára gamla Kópavogsmær hefur alls leikið 19 landsleiki fyrir hönd Íslands og mun landsleikjunum  að öllum líkindum fjölga hratt á næstu árum.

Viðurkenningar

Flokkur 17 ára og eldri:

Agla María Albersdóttir knattspyrna, Agnes Suto Tuuha áhaldafimleikar,  Bára Einarsdóttir, skotfimi, Birgir Leifur Hafþórsson golf, Ellen Ýr Jónsdóttir kraftlyftingar, Gunnleifur Vignir Gunnleifsson, knattspyrna, Ingvar Ómarsson hjólreiðar, Jón Þór Sigurðsson skotfimi, Svana Katla Þorsteinsdóttir karate, Valgarð Reinhardsson áhaldafimleikar.

Flokkur 13 til 16 ára:

Adrian Romanowski dans, Andri Fannar Baldursson knattspyrna, Birkir Ísak Jóhannsson, skák, Birna Kristín Kristjánsdóttir frjálsar íþróttir, Björn Davíðsson skíði, Dagur Kári Ólafsson fimleikar,  Eliot Robertet tennis, Elvar Breki Árnason blak, Fannar Kvaran dans, Fanný Helga Þórarinsdóttir dans, Gylfi Már Hrafnsson dans, Hulda Clara Gestsdóttir golf, Hulda María Sveinbjörnsdóttir hestaíþróttir, Jóhanna Margrét Sigurðardóttir handknattleikur, Kristín Helga Hákonardóttir sund, Kristjana R. Kristjánsdóttir Sigurz knattspyrna, Kristófer Darri Sigurðsson hestaíþróttir, Lelja Sara Hadziredzepovic blak, María Lena Ásgeirsdóttir knattspyrna, María Tinna Hauksdóttir dans, Markús Birgisson frjálsar íþróttir, Ólafía Elísabet Einarsdóttir skíði, Patrik Viggó Vilbergsson sund, Rebekka Ýr Arnarsdóttir,  Sigurður Arnar Garðarsson golf, Símon Michael Guðjónsson handknattleikur,  Sofia Sóley Jónasdóttir tennis, Sonja Margrét Ólafsdóttir fimleikar, Tómas Pálmar Tómasson karate, Valgeir Valgeirsson knattspyrna.

Flokkur ársins 2018 var kjörinn meistaraflokkur Breiðabliks  í knattspyrnu kvenna en liðið varð Íslands- og bikarmeistari í knattspyrnu á árinu.

Einnig voru veittar viðurkenningar fyrir þátttöku í alþjóðlegum meistaramótum og alþjóðlegra meistara.