Jólatré fjarlægð

Jólatré við Hálsatorg
Jólatré við Hálsatorg

Kópavogsbær fjarlægir jólatré bæjarbúa dagana 4. janúar til og með 10. janúar. Íbúar sem vilja nýta sér þessa þjónustu eru vinsamlegast beðnir um að setja jólatréin út fyrir lóðamörk og ganga þannig frá þeim að þau geti ekki fokið. 

Einnig geta íbúar losað sig við jólatré á endurvinnslustöðvum Sorpu án þess að greiða förgunargjald fyrir þau.