Kári Steinn og Kristjana Sæunn íþróttafólk ársins

Þessi mynd er tekin á íþróttahátíðinni í upphafi árs 2012. Kristjana Sæunn Ólafsdóttir, íþróttakona…
Þessi mynd er tekin á íþróttahátíðinni í upphafi árs 2012. Kristjana Sæunn Ólafsdóttir, íþróttakona ársins, og faðir Kára Steins, íþróttakarls ársins, Karl G. Kristinsson, en Kári gat ekki verið viðstaddur hátíðina.

Kári Steinn Karlsson, frjálsíþróttamaður úr Breiðabliki, og Kristjana Sæunn Ólafsdóttir,  fimleikakona úr Gerplu, voru kjörin íþróttakarl og íþróttakona Kópavogs fyrir árið 2011. Kjörinu var lýst á íþróttahátíð Kópavogs í Salnum við hátíðlega athöfn síðdegis í dag.

Fengu þau að launum farandbikar og eignarbikar jafnframt því sem Guðríður Arnardóttir, formaður bæjarráðs Kópavogs, afhenti þeim hvoru um sig 150 þúsund króna ávísun í viðurkenningarskyni frá bæjarstjórn Kópavogs

Kári Steinn og Kristjana Sæunn voru valin úr hópi 38 íþróttamanna sem fengu viðurkenningu íþróttaráðs Kópavogs eftir tilnefningar frá íþróttafélögunum í bænum.

Kári Steinn Karlsson

Kári Steinn setti á árinu Íslandsmet í hálfu maraþoni í Reykjavík og í heilu maraþoni í Berlín.  Í Berlín náði Kári jafnframt lágmarkinu fyrir Ólympíuleikana sem verða í London árið 2012.  Þar með verður hann fyrstur íslenskra karla til þess að taka þátt í maraþoni á Ólympíuleikum.  Með árangri sínum er Kári orðin einn fremsti maraþonhlaupari á Norðurlöndum.  Auk   glæsilegra afreka í maraþoni varð Kári Íslandsmeistari í 5000 metra hlaupi og bikarmeistari í 1500 og 5000 metra hlaupum. Einnig sigraði hann í öllum götu- og víðavangshlaupum sem hann tók þátt í hér á landi.  Hann undirbýr sig nú af  kappi fyrir Ólympíuleikana í London á komandi sumri. 

 Kristjana Sæunn Ólafsdóttir

Kristjana Sæunn varð á árinu Íslands- og bikarmeistari í hópfimleikum kvenna  ásamt stöllum sínum í liði Gerplu, en þær urðu Íslandsmeistarar í fjölþraut og sigruðu einnig á öllum áhöldum.  Hápunktinum var hinsvegar náð í nóvember síðastliðnum þegar hún varð ásamt liðsfélögum sínum Norðurlandameistari í hópfimleikum. Kristjana Sæunn var máttarstólpi liðsins þar sem hún framkvæmdi erfiðustu æfingarnar á mótinu og var í öllum umferðum hjá Gerpluliðinu, nokkuð sem aðeins afburðaíþróttamenn gera.  

 

Viðurkenningar

Flokkur 17 ára og eldri:

Fanndís Friðriksdóttir knattspyrna, Hanna Rún Ólafsdóttir dans,  Jón Margeir Sverrisson sund, Kári Steinn Karlsson frjálsar íþróttir, Kristjana Sæunn Ólafsdóttir hópfimleikar, Ólafur Bjarki Ragnarsson handknattleikur, Róbert Kristmannsson áhaldafimleikar, Sigurður Þór  Sigurðsson dans, Stefanía Valdimarsdóttir frjálsar íþróttir og Svana Katla Þorsteinsdóttir karate.

Flokkur 13 til 16 ára:

Aníta Rún Árnadóttir körfuknattleikur, Arna Ýr Jónsdóttir frjálsar íþróttir,  Athena Neve Leex sund,  Berglind Gígja Jónsdóttir blak, Ella Dís Thorarensen knattspyrna, Glódís Perla Viggósdóttir knattspyrna, Herborg Lúðvíksdóttir dans, Katrín Kristinsdóttir karate, Kristín Hermannsdóttir hestaíþróttir, Malín Agla Kristjánsdóttir dans, Sandra Erlingsdóttir handknattleikur,  Sigríður Hrönn Bergþórsdóttir áhaldafimleikar, Særós Eva Óskarsdóttir golf, Adrían Héðinn Gonzales borðtennis,  Brynjar Karl Ævarsson körfuknattleikur, Davíð Freyr Guðjónsson karate,  Eyþór Pétur Aðalsteinsson siglingar, Guðlaugur Agnar Valsson dans, Ingimar Logi Guðlaugsson sund, Kristófer Haukur Hauksson dans, Lúðvík Már Matthíasson blak, Orri Sigurður Ómarsson knattspyrna, Páll Olgeir Þorsteinsson knattspyrna, Ragnar Már Garðarsson golf, Sigurður Egill Karlsson handknattleikur, Sindri Hrafn Guðmundsson frjálsar íþróttir, Valgarð Reinhardsson áhaldafimleikar og Vladimir Ristic tennis.

Flokkur ársins 2011 var kjörinn meistaraflokkur Gerplu í hópfimleikum kvenna en liðið varð Norðurlandameistari í hópfimleikum kvenna auk þess að verða bæði Íslands- og bikarmeistari.

 

Einnig voru á hátíðinni afhentar viðurkenningar fyrir árangur á alþjóðlegum vettvangi.