Kópavogsbær fær Orðsporið

Frá afhendingu Orðsporsins 2015, frá vinstri Anna Birna Snæbjörnsdóttir, sviðsstjóri menntasviðs, S…
Frá afhendingu Orðsporsins 2015, frá vinstri Anna Birna Snæbjörnsdóttir, sviðsstjóri menntasviðs, Sesselja Hauksdóttir, leikskólafulltrúi, Ármann Kr. Ólafsson, bæjarstjóri Kópavogs, G. Ásgerður Eiríksdóttir, leikskólastjóri í Þorlákshöfn, Gunnsteinn Ómarsson bæjarstjóri sveitarfélagsins Ölfuss og Illugi Gunnarsson, menntamálaráðherra.

Kópavogsbær fékk Orðsporið 2015 fyrir aðgerðir til að fjölga leikskólakennurum á leikskólum bæjarins. Orðsporið eru hvatningarverðlaun sem veitt eru þeim sem þykir hafa skarað fram úr í að efla orðspor leikskólastarfs í landinu og hafa unnið ötullega í þágu leikskólastarfs og leikskólabarna. Auk Kópavogs fékk sveitarfélagið Ölfuss viðurkenningu.

Illugi Gunnarsson mennta- og menningarmálaráðherra afhenti viðurkenningarnar við hátíðlega athöfn í Björnslundi leikskólans Rauðhóls í Norðlingaholti í dag. Fyrir hönd Kópavogs tóku þau Sesselja Hauksdóttir leikskólafulltrúi og Ármann Kr. Ólafsson bæjarstjóri við viðurkenningunni. Gunnsteinn Ómarsson bæjarstjóri og G. Ásgerður Eiríksdóttir leikskólastjóri tóku við Orðsporinu af hálfu Sveitarfélagsins Ölfuss.

Ákveðið var á síðasta ári að Orðsporið 2015 færi til sveitarfélags eða rekstraraðila sem þætti hafa skarað fram úr í hækka menntunarstig starfsmanna og eða fjölga leikskólakennurum.

Í rökstuðningi valnefndar um Orðsporið 2015 segir að bæði sveitarfélögin hafi sýnt sveigjanleika þannig að leikskólastarfsmenn hafa getað sinnt námi með vinnu; styrkir hafi verið veittir vegna námskostnaðar og launuð námsleyfi veitt. Í báðum sveitarfélögunum hefur þeim sem stundað hafa og lokið námi í leikskólakennarafræðum fjölgað í kjölfar metnaðarfullrar stefnu og framkvæmdar hennar. Nú eru 25 leikskólastarfsmenn í Kópavogi í námi í leikskólakennarafræðum og í Ölfusi hafa 13 lokið námi í leikskólakennarafræðum frá aldamótum.

Að Degi leikskólans stendur Samstarfshópur um Dag leikskólans en hann er skipaður fulltrúum Félags leikskólakennara, Félags stjórnenda leikskóla, mennta- og menningarmálaráðuneytis, Sambands íslenskra sveitarfélaga og Heimilis og skóla.