Kópavogsdagar hefjast 8. maí

Líf og fjör í sundlaug Kópavogs
Líf og fjör í sundlaug Kópavogs

Kópavogsdagar, menningarhátíð Kópavogsbæjar, hefjast 8. maí og standa yfir til 11. maí. Í boði eru fjölbreyttir viðburðir sem ættu að höfða til fólks á öllum aldri. Má þar nefna pönkhátíð á Spot og í Molanum, ævintýraleikrit fyrir börn í Bókasafni Kópavogs, djass og franskar aríur í Tónlistarsafni Íslands, spuna og leik í húsnæði Leikfélags Kópavogs og veggjalist í Hamraborginni. 

Ljóð fljóta í sundlaugum bæjarins og Karlakór Kópavogs ætlar að vera á rúntinum á laugardeginum og syngja fyrir gesti víða um bæ. Þetta er í ellefta sinn sem hátíðin er haldin.

Á síðasta degi hátíðarinnar verður upplýst um útnefningu heiðurslistamanns og bæjarlistamanna. Athöfnin fer fram í Gerðarsafni. Lista- og menningarráð hefur frá árinu 1988 valið heiðurslistamann en í fyrsta sinn nú eru jafnframt útnefndir bæjarlistamenn. 

Með fyrrnefnda valinu er verið að heiðra listamann fyrir ævistarf en með síðarnefnda valinu er verið að velja efnilega listamenn til að sinna ákveðnu fræðslu – og menningarstarfi.