Kópavogur í samstarf við OECD

Mynd frá vinstri: Auður Finnbogadóttir verkefnastjóri stefnumótunar, Stina Heikkila frá OECD, Gunn …
Mynd frá vinstri: Auður Finnbogadóttir verkefnastjóri stefnumótunar, Stina Heikkila frá OECD, Gunn Nygard frá Viken, Ármann Kr. Ólafsson bæjarstjóri, Elisabeth Gerill frá Viken, Stefano Marta frá OECD, Páll Magnússon bæjarritari.

Kópavogsbær er kominn í samstarf við OECD, Efnahags- og framfarastofnun Evrópu, í tengslum við innleiðingu bæjarfélagsins á Heimsmarkmiðum Sameinuðu þjóðanna.

Fulltrúar OECD komu af því tilefni til þriggja daga vinnufundar í Kópavogi í vikunni ásamt fulltrúum frá Viken-héraði í Noregi. Viken er, ásamt Kópavogi og fimm öðrum sveitarfélögum eða landshlutum um heim allan, þátttakandi í verkefni OECD sem hefur það að markmiði að búa til samanburðarhæfar mælingar milli sveitarfélaga á alþjóðavísu sem nýtast við innleiðingu Heimsmarkmiðanna. Þá gefst þátttakendum í verkefninu færi á að deila þekkingu og reynslu af því hvernig staðið er að staðfærslu og innleiðingu Heimsmarkmiðanna.

Samstarfið mun nýtast okkur við að gera árangurmælikvarða svo við getum mælt hvernig til hefur tekist í kjölfar samþykktar á heildarstefnu Kópavogsbæjar þar sem yfirmarkmiðin eru Heimsmarkmið Sameinuðu þjóðanna. Mælikvarðarnir munu svo nýtast til að gera rekstur sveitarfélagsins og áætlanagerð alla markvissari sem síðan skilar sér í betra samfélagi fyrir alla Kópavogsbúa,“ segir Ármann Kr. Ólafsson bæjarstjóri Kópavogs.

Þá daga sem hópurinn dvaldi hér á landi fékk hann kynningu á þeim mælingum og þeirri aðferðafræði sem hefur verið lögð til grundvallar í Kópavogi. 

Þá fundaði hópurinn með fulltrúum fyrirtækja, stofnana,  félagasamtaka og ráðuneyta auk þess að haldnar voru vinnustofur með verkefnahópi innleiðingar Heimsmarkmiðanna í Kópavogi og bæjarfulltrúum Kópavogsbæjar.

Bæjarstjórn Kópavogs samþykkti í september síðastliðnum að innleiða Heimsmarkmið Sameinuðu þjóðanna um sjálfbæra þróun í stefnu Kópavogsbæjar.