Kópurinn: Auglýst eftir umsóknum

Handhafar Kópsins 2017.
Handhafar Kópsins 2017.

Menntaráð Kópavogs auglýsir hér með eftir tilnefningum til viðurkenninga fyrir framúrskarandi skólastarf í grunnskólum Kópavogs.

Viðurkenningar verða veittar fyrir 3 – 5 verkefni sem stuðla að nýbreytni og framþróun innan skólanna. Með því er átt við nýjungar í skólastarfi eða þróunarverkefni sem fela í sér umbætur eða leiða til framfara í skólastarfi. Auk þess er æskilegt að verkefnið sýni:
 
– að það hefur verið unnið af frumkvæði, fagmennsku og ábyrgð.
– að það hafi leitt til umbóta og/eða framfara í skólastarfi. 
– að það feli í sér hvatningu til eftirbreytni innan viðkomandi skóla og utan.
 
Skriflegar tilnefningar skulu berast rafrænt á sérstöku eyðublaði til grunnskóladeildar Kópavogs til  hekla@kopavogur.is  eigi síðar en 27. apríl 2018.

Eyðublað fyrir tilnefningar