Krakkahátíðin Kópurinn

Krakkahátíðin Kópurinn verður haldin 9.maí.
Krakkahátíðin Kópurinn verður haldin 9.maí.
Krakkahátíðin Kópurinn, barnamenningarhátíð Kópavogs, verður haldin laugardaginn 9.maí. Boðið er upp á skemmtilega viðburði milli 12 og 16 í menningarhúsunum í Kópavogi, tónlist, skemmtilegar leik-, dans- og sirkussýningar og smiðjur sem virkja sköpunargáfuna. Aðgangur er ókeypis. 
 
 
Nánar
 
Heimsins mest listelskandi kópur? Auðvitað býr hann í Kópavogi! Kópurinn býður krökkum og fjölskyldum þeirra að koma og njóta lista sem sérstaklega eru ætluð þeim. Krakkahátíðin er barnamenningarhátíðin okkar hér í Kópavogi. Hún er sett á laggirnar í ár með nýjum áherslum og nýju útliti. Kópurinn okkar er forvitinn prakkari sem elskar list og hann býður öllum að koma og upplifa, því það verður ótal margt í boði.  Geggjuð tónlist, skemmtilegar leik-, dans- og sirkussýningar og smiðjur sem virkja sköpunargáfuna.
 
Verið öll hjartanlega velkomin, stór sem smá.