Krónikan opnar í Kópavogi

Á myndinni eru frá vinstri: Bragi Skaftason  og Sigrún Skaftadóttir frá Króníkunni, Ásdís Kristjáns…
Á myndinni eru frá vinstri: Bragi Skaftason og Sigrún Skaftadóttir frá Króníkunni, Ásdís Kristjánsdóttir bæjarstjóri, Brynja Sveinsdóttir, safnstjóri Gerðarsafns og Soffía Karlsdóttir forstöðumaður menningarmála hjá Kópavogsbæ.

Veitingastaðurinn Krónikan opnar í Gerðarsafni innan tíðar en samningur við nýjan rekstraraðila var undirritaður í dag, 11.maí á afmælisdegi Kópavogsbæjar.

Bragi Skaftason og Sigrún Skaftadóttir, systkini úr Vesturbæ Kópavogs, hafa tekið reksturinn að sér en þau hafa bæði mikla reynslu úr veitingageiranum.

Bragi sem eigandi og rekstraraðili meðal annars Veðurs, Vínstúkunnar 10 sopar og Brút. Sigrún hefur meðal annars unnið á Bergsson mathús. Áherslan á nýja staðnum, Krónikunni, verður á smörrebröd, rammíslenskar kaffiveitingar, góð vín, bjór og ákavíti.

„Við erum mjög spennt fyrir að taka við rekstri í hinum eina sanna miðbæ Kópavogs, þetta eru okkar slóðir og við hlökkum mikið til taka á móti gestum,“ segja Bragi og Sigrún.

Krónikan verður til að byrja með opin alla daga frá klukkan 12.00 - 19.00 og er stefnt að opnun í júní.

Ásdís Kristjánsdóttir bæjarstjóri Kópavogs segir mjög kærkomið að fá veitingastað í Gerðarsafn. „Krónikan verður frábær viðbót við starfsemi menningarhúsanna sem ég er sannfærð um að bæjarbúar og aðrir eiga eftir að taka opnum örmum.“