Krónikan opnar í Kópavogi

Veitingastaðurinn Krónikan opnar í vikunni.
Veitingastaðurinn Krónikan opnar í vikunni.

Veitingastaðurinn Krónikan opnar í Gerðarsafni í vikunni. Samningur við nýjan rekstraraðila var undirritaður 11.maí á afmælisdegi Kópavogsbæjar. Systkinin Sigrún Skafta og Bragi Skafta taka að sér reksturinn en þau hafa bæði mikla reynslu úr veitingageiranum. Bragi sem eigandi og rekstraraðili meðal annars Vínstúkunnar 10 sopar, Brút og Kaffi Ó-le en Sigrún vann sem veitingastjóri á Bergsson mathús.

Þau systkinin eru uppalin í Vesturbæ Kópavogs en Sigrún bjó um skeið í Danmörku. Nú er hún aftur komin á æskuslóðir en hún hefur komið sér vel fyrir á Kópavogsbrautinni. Hún opnar nú á dögunum veitingastað í hjarta Kópavogs sem býður upp á danskt smurbrauð.

Í Gerðarsafni hefur oftast verið rekið kaffihús en áherslan hjá Krónikunni verður á smurbrauð, smárétti og léttvín. Systkinin segir þó að kaffivélin verði að sjálfsögðu á sínum stað. Í eldhúsinu verður Magnús Anton sem starfaði áður sem kokkur á veitingastaðnum Kastrup. Veitingastaðurinn verður opinn frá 11:30 til 21:00.

Ásdís Kristjánsdóttir bæjarstjóri Kópavogs segir mjög kærkomið að fá veitingastað í Gerðarsafn. „Krónikan verður frábær viðbót við starfsemi menningarhúsanna sem ég er sannfærð um að bæjarbúar og aðrir eiga eftir að taka opnum örmum.“ Formlegt opnunarhóf verður haldið í september.