Landnemar í Kópavogi

Landnemar í Kópavogi, rit Sögurfélags og Héraðsskjalasafns Kópavogs.
Landnemar í Kópavogi, rit Sögurfélags og Héraðsskjalasafns Kópavogs.

Bræðurnir Finnjón og Sveinn Mósessynir og frumbýlingsár þeirra í Kópavogi er umfjöllunarefni ritsins Landnemar í Kópavogi eftir Leif Reynisson sagnfræðing. Ritið er fjórða í ritröð Sögufélags Kópavogs og Héraðsskjalasafns Kópavogs. Bræðurnir hófu að reisa sér og fjölskyldum sínum hús við Nýbýla- og Álfhólsveg á fjórða áratug síðustu aldar. Sagt er frá samheldni nágranna á tímum þegar rafmagn, sími, rennandi vatn og malbikaðir vegir voru framtíðardraumar.

 Einnig hvernig nábýlið við setuliðið var á hernámsárunum og áhrifunum af því þegar byggðin þéttist og Kópavogur breyttist úr sveit í borg.

Leifur er sonarsonur Sveins Mósessonar og er þetta því líka fjölskyldusaga hans. Landnemar í Kópavogi er fróðlegt og skemmtilegt rit sem á erindi við alla þá sem vilja kynnast upphafi byggðar í Kópavogi.

Ritið er fjórða smáritið sem kemur úr í ritröð Sögufélags Kópavogso g Héraðsskjalasafns Kópavogs.

Gunnar Marel Hinriksson hjá Héraðsskjalasafni Kópavogs bjó ritið til prentunar. Ritið fæst hjá Héraðsskjalasafni Kópavogs, Digranesvegi 7 (gamla pósthúsinu) og kostar kr. 2.500.  Einnig er hægt að senda tölvupóst á gunnarmh@kopavogur.is eða hafa samband í síma 544 4711.

Félagar í Sögufélagi Kópavogs fá ritið sent heim og er það innifalið í árgjaldi félagsins, sem er kr. 2.000.