- Íbúar
- Börn og ungmenni
- Íþróttir & útivist
- Velferð
- Þjónusta
- Skipulagsmál
- Byggingarmál
- Samgöngur
- Umhverfi
- Menning
- Íbúaverkefni
- Stjórnsýsla
- Mannlíf
- þjónustugátt
- Ábendingar
Lokað verður fyrir umferð um hringtorg á Lindarvegi við Núpa- og Skógarlind miðvikudaginn 16. júní frá kl. 9:00 til 13:00 vegna malbiksframkvæmda. Ökumönnum sem leið eiga frá húsagötum við Hlíðardalsveg er bent á að aka um Hlíðardalsveg að Fífuhvammsvegi. Ökumönnum sem leið eiga um Skógarlind að Lindarvegi er bent á að aka um Dalveg að Fífuhvammsvegi.
Þeim sem erindi eiga að Núpalind þar á meðal að Lindaskóla og leikskólanum Núpur er beint á bílastæði við Galtalind.
Beðist er velvirðingar á þeim óþægindum sem framkvæmdin kann að valda og eru ökumenn beðnir um að sýna tillitsemi og virða merkingar.