Megi Lindaskógur vaxa og dafna

Nemendurnir stóðu sig með prýði
Nemendurnir stóðu sig með prýði

Nemendur í Lindahverfi tóku sig nýverið saman og gróðursettu tré á útinámssvæði sínu sem er fyrir ofan leikskólann Núp og Lindaskóla og skammt frá leikskólanum Dal. Alls nærri 300 plöntur. Hver árgangur gróðursetti grenitré sem verður merkt árgangnum. Þau kusu einnig um nafn fyrir svæðið og varð Lindaskógur fyrir valinu.

Útinámssvæði eru víða í nágrenni skóla í Kópavogi. Þar fer fram fræðsla um náttúru og útivist. Settir hafa verið upp bekkir úr trjátrumbum sem nýtast í útikennslunni. 

Lindaskógur er ætlaður nemendum fyrrgreindra skóla en einnig mega allir íbúar svæðisins nýta sér aðstöðuna þar til að eiga góðar stundir.
 
Ljóst er að nemendurnir eiga eftir að fylgjast vel með vexti skógarins í nánustu framtíð.