Menningarstyrkir Kópavogs afhentir

Handhafar menningarstyrkja í Kópavogi 2015.
Handhafar menningarstyrkja í Kópavogi 2015.

Menningarstyrkir í Kópavogi voru afhentir við hátíðlega athöfn í Salnum í hádeginu í dag. Alls 20 aðilar, einstaklingar, hópar, hátíðir eða samtök fá styrk úr lista- og menningarsjóði í ár. Upphæðin nemur  um 14,5 milljónum króna.

Verkefnin sem hljóta styrk eru fjölbreytt að venju og má meðal annars nefna nýja lista- og tónlistarhátíð Cycle sem fram fer í Salnum, Gerðarsafni og víðar í Kópavogi í ágúst, útitónleika í Hamraborg undir stjórn Erps Eyvindarsonar, Tónlistarhátíð unga fólksins, sérviðburði á Riff kvikmyndahátíð og barnamenningarhátíð í lok maí svo fátt eitt sé nefnt. Kórar í Kópavogi fá einnig rekstrarstyrk sem og Sögufélag Kópavogs og Ritlistarhópur Kópavogs.

Af minni verkefnum sem hlutu styrki má meðal annars nefna lágmynd af Valdimar Kristni Valdimarssyni, viðburð með frumsamdri tónlist í Tónlistarsafni Íslands og kortlagning myndlistarstofa í Auðbrekku í Kópavogi.

Lista- og menningarráð Kópavogs fer með stjórn lista- og menningarsjóðs en tiltekið hlutfall af útsvarsstofni rennur í sjóðinn. Yfir fjörutíu umsóknir bárust um menningarstyrki í ár. Tilgangurinn er að auðga menningarlíf bæjarins.

Hér á eftir fer listi yfir styrkþega:

Félag Wikimedianotenda á Ísland. Styrkur til að halda opin námskeið í samstarfi við Bókasafn Kópavogs. Samtals 80.000 kr.

Nafnlausi leikhópurinn. Styrkur vegna leiklesturs á leikritinu Maður og kona. Samtals 200.000 kr.

Tónlistarskóli Kópavogs. Styrkur til tónleikahalds. Samtals 250.000 kr.

Skólahljómsveit Kópavogs. Styrkur til að semja og flytja trompetkonsert í tilefni 50 ára afmælis skólahljómsveitarinnar. Samtals 150.000 kr.

Tónlistarhátíð unga fólksins. Styrkur til að halda árleg hátíð í Kópavogi fyrir ungt tónlisarfólk. Samtals 500.000 kr.

Myndlistarfélag Kópavogs . Styrkur til að vera með viðburð á Kópavogsdaginn 16. maí. Samtals  250.000 kr.

Elín Dröfn Jónsdóttir. Styrkur til að halda viðburð með frumsamdri tónlist og vídeóverkum í Tónlistarsafni Íslands. Samtals 100.000 kr.

Vinir Valda Vallarvarðar. Styrkur til að gera lágmynd af Valdimar Kristni Valdimarssyni. Samtals 250.000 kr.

Baldvin Snær Hlynsson. Styrkur til að taka upp frumsamda tónlist í stúdíói . Samtals 100.000 kr.

Erpur Eyvindarson. Styrkur til að halda útitónleika í Hamraborg. Samtals 1,5 milljónir kr.

RIFF, alþjóðleg kvikmyndahátíð í Reykjavík. Styrkur til að vera með sérviðburði í menningarhúsum Kópavogsbæjar. Samtals 3,5 milljónir kr.

Cycle, tónlistar- og listahátíð. Styrkur til að halda nýja listahátíð í Kópavogi í samstarfi við Gerðarsafn, Salinn, Náttúrufræðistofu Kópavogs og Listhús Kópavogsbæjar. Samtals 3,5 milljónir kr.

Björn Thoroddsen. Styrkur til að halda Jazzhátíð í Kópavogi. Samtals 1,5 milljónir kr.

Pamela De Sensi. Styrkur til að halda menningarhátíðina Ormadaga í Kópavogi. Samtals 1,5 milljónir kr.

Rekstrarstyrki hljóta:

Kvennakór Kópavogs. Samtals  180.000 kr.

Karlakór Kópavogs. Samtals 180.000 kr.

Samkór Kópavogs. Samtals 180.000 kr.

Söngvinir, kór aldraðra. Samtals 180.000 kr.

Ritlistarhópur Kópavogs. Samtals 120.000 kr.

Sögufélag Kópavogs. Samtals. 180.000 kr.