Miðbæjarsvæði - myndband

Kynningarfundur um skipulagsmál á miðbæjarsvæði Kópavogs er nú aðgengilegur á vimeo.

Kynningarfundur um tillögu á vinnslustigi að breyttu aðalskipulagi Kópavogs á miðbæjarsvæði var haldinn fimmtudaginn 19. mars kl. 17.00-18.00.  Einnig var vinnslutillaga að deiliskipulagi miðbæjarsvæði kynnt á sama fundi. 

Í ljósi aðstæðna var fundurinn haldinn án gesta en streymt á vef Kópavogsbæjar.

Hægt er að beina spurningum að starfsfólki skipulags- og byggingardeildar á netfangið skipulag@kopavogur.is.

Breyting á aðalskipulagi. Fannborgarreitur - Traðarreitur - vestur. Vinnslutillaga