- Íbúar
- Börn og ungmenni
- Íþróttir & útivist
- Velferð
- Þjónusta
- Skipulagsmál
- Byggingarmál
- Samgöngur
- Umhverfi
- Menning
- Íbúaverkefni
- Stjórnsýsla
- Mannlíf
- þjónustugátt
- Ábendingar
Fimmtudaginn 5. júlí er stefnt að því að malbika akreinar á Reykjanesbraut í Kópavogi.
Byrjað verður á ytri akrein, frá beygjurampi við Bæjarlind að beygjurampi við Lindir. Næst verður farið í innri akrein, frá vegi við Hnoðraholtsbraut og að beygjurampi við Lindir.
Þrengt verður í eina akrein á meðan framkvæmdum stendur og búast má við lítilsháttar umferðartöfum.
Áætlað er að framkvæmdirnar standi yfir milli kl. 09:00 til kl. 22:00.
Vegfarendur eru beðnir um að virða merkingar og hraðatakmarkanir og sýna aðgát við vinnusvæðin. Vinnusvæðin eru þröng og menn og tæki eru við vinnu mjög nálægt akstursbrautum.