Nýr samstarfssamningur um rekstur skíðasvæða í Bláfjöllum

Á stjórnarfundi SSH ( Samtaka sveitarfélaga á höfuðborgarsvæðinu ) hinn 6. janúar 2014 var undirritaður  nýr samstarfssamningur um rekstur skíðasvæða höfuðborgarsvæðisins. Aðilar að samningnum eru Mosfellsbær, Reykjavíkurborg, Seltjarnarnes, Kópavogur, Garðabær og Hafnarfjörður.

Í samningnum, sem nær til þriggja ára, er fjallað um tilgang, framtíðarsýn og þau meginmarkmið sem sveitarfélögin setja sér með rekstri skíðasvæða höfuðborgarsvæðisins í Bláfjöllum og Skálafelli. Þá er í samningnum kveðið á um árlegt rekstrarframlag sveitarfélaganna á samningstímanum sem nemur samtals um 145.359 þúsund krónum.

Í samningnum er einnig sérstakt ákvæði um aðgerðir til undirbúnings að snjóframleiðslu, sem er þó háð niðurstöðum úr heildarendurskoðun vatnsverndar fyrir höfuðborgarsvæðið og áhættugreiningu vegna starfsemi skíðasvæðisins í Bláfjöllum í ljósi mögulegra áhrifa hennar á vatnsverndina.

Samhliða undirritun samningsins var jafnframt ritað undir sérstakan þjónustusamning  við ÍTR (Íþrótta- og tómstundaráð Reykjavíkur) um umsjón með daglegum rekstri skíðasæðanna f.h. aðildarsveitarfélaganna. Með því eru settar ákveðnari og skýrari stjórnunarlegar forsendur og ábyrgðarskilgreining á þennan rekstur.