Nýtt húsnæði fyrir fatlaða í Kópavogi

Austurkór 3 í Kópavogi.
Austurkór 3 í Kópavogi.

Velferðasviði Kópavogsbæjar voru í dag afhentir lyklar að Austurkór 3 sem er íbúðakjarni fyrir fatlaða. Í Austurkór eru sex íbúðir ásamt aðstöðu fyrir starfsmenn sem veita íbúum þjónustu allan sólarhringinn. Þá hefur verið lokið þeim tíu íbúðum sem samþykkt var að reisa árið 2012 en framkvæmdir eru hafnar við fjórar nýjar þjónustuíbúðir sem afhentar verða um mitt næsta ár.

Tekin var ákvörðun um uppbyggingu á búsetu með sólarhringsþjónustu fyrir allt að tíu einstaklinga árið 2012, í samræmi við samþykkta áætlun um búsetuúrræði hófust framkvæmdir þá þegar. Í september 2013 voru fjórar íbúðir í íbúðarkjarna á Kópavogsbraut afhentar og nú eru afhentar sex íbúðir.

Gunnsteinn Sigurðsson formaður félagsmálaráðs Kópavogs greindi frá uppbyggingu á búsetuúrræðum í Kópavogi við vígslu hússins í dag.  Ármann Kr. Ólafsson bæjarstjóri Kópavogs afhenti svo Guðlaugu Ósk Gísladóttur yfirmanni þjónustudeildar fatlaðra lykla að húsnæðinu. „Það er ánægjulegt að fá að afhenda þetta glæsilega hús sem er mikilvægur áfangi í félagsþjónstu bæjarins,“ sagði hann við tækifærið. Þess má geta að Austurkór 3 mun til haustsins verða heimili sex einhverfra einstaklinga á meðan húsnæði þeirra í Dimmuhvarfi verður endurbætt.

Þegar Kópavogsbær tók við málefnum fatlaðs fólks af ríkinu í ársbyrjun 2011 lá fyrir biðlisti 40 einstaklinga eftir húsnæði með sértækri þjónustu. Bæjarfélagið hóf strax vinnu við að tryggja þessu fólki nauðsynlegar úrbætur.  

Tveir nýir þjónustukjarnar hafa verið teknir í notkun frá yfirfærslu, annar um sumarið 2011 og sá seinni haustið 2013. Framkvæmdir eru þegar hafnar að byggingu fjögurra nýrra íbúða auk þess sem lögð hefur verið fram 12 ára áætlun í húsnæðismálum fatlaðs fólks.

Í tilefni dagsins var opið hús í Austurkór 3 og gafst gestum tækifæri til þess að skoða húsnæðið áður en því verður ráðstafað.