Ókeypis í Kópavogsstrætó í tilefni tónleika

Helgi Pétursson og Saga Garðarsdóttir eru kynnar á afmælistónleikum Kópavogs í Kórnum 10. maí.
Helgi Pétursson og Saga Garðarsdóttir eru kynnar á afmælistónleikum Kópavogs í Kórnum 10. maí.

Gestir á leið á tónleika í tilefni stórafmælis Kópavogs sunnudaginn 10. maí eru hvattir til að skilja bíla eftir heima eða á bílastæðinu í Smáralind og taka strætó sem ekur um Kópavog í tilefni dagsins. Ókeypis er í strætóinn sem gengur á tíu mínútna fresti frá Hamraborg í Kórinn með viðkomu í Smáralind. 

Kópavogsbúum og öllum velunnurum bæjarins er boðið á stórtónleika í Kórnum í Kópavogi sunnudaginn 10. maí í tilefni sextugsafmælis bæjarins. Húsið opnar klukkan 15 en tónleikarnir hefjast klukkan 16.00.

 Á tónleikunum koma fram tónlistarmenn sem ýmist búa eða hafa búið í Kópavogi og flytja dagskrá þar sem saga bæjarins og saga íslenskrar dægurtónlistar verða fléttuð saman með skemmtilegum hætti. Flutt verða íslensk lög úr ýmsum áttum í fjölskylduvænni dagskrá. Meðal flytjenda má nefna Sölku Sól, Ríó tríó, Fræbbblana, Erp Eyvindarson og 400 barna kór undir stjórn Þórunnar Björnsdóttur.

Kynnar tónleikanna verða Kópavogsbúinn Helgi Pétursson og Reykvíkingurinn Saga Garðarsdóttir. Húsið opnar klukkan 15 en tónleikarnir hefjast klukkan 16.00. Hoppukastalar verða fyrir utan Kórinn frá klukkan 15.00.

Þess má geta Strætóferðir hefjast klukkan 14 og þeim lýkur klukkan 18:30. Alls verða fimm vagnar á ferðinni og vonast er til þess að sem flestir nýti sér þennan samgöngumáta sem auðvitað er ókeypis í tilefni dagsins. Þá eru yfir 1000 bílastæði við Kórinn og verður vaskt lið við umferðastýringu á sunnudag.

Tónleikarnir eru viðamesti viðburðurinn á sextugsafmæli bæjarins en auk þess verða ýmsar uppákomur og viðburðir í bænum um og í kringum afmælishelgina. Allar upplýsingar er að finna á www.kopavogur.is