Anna Birna Snæbjörnsdóttir, sviðsstjóri menntasviðs, Silja Dís Guðjónsdóttir, atferlisfræðingur á grunnskóladeild, Atli Magnússon, framkvæmdastjóri Arnarskóla, Kristín Sigurðardóttir, skólastjóri Salaskóla, Sigrún Bjarnadóttir, skólastjóri Álfhólsskóla, Tryggvi Guðjón Ingason, verkefnastjóri skólaþjónustu á grunnskóladeild, Ingibjörg Ýr Pálmadóttir, deildarstjóri grunnskóladeildar, Amanda K. Ólafsdóttir, skrifstofustjóri menntasviðs.
Nám- og starfsumhverfi sem styður öryggi og vellíðan er heiti nýrrar viðbragðsáætlunar sem samþykkt var í menntaráði Kópavogs 17.mars síðastliðinn. Markmið áætlunarinnar er að styrkja heilbrigt og faglegt skólaumhverfi sem byggir á öryggi, trausti og virðingu fyrir nemendum og starfsfólki.
Áætlunin er hluti af innleiðingu umbótatillagna í grunnskólamálum undir yfirskriftinni Framtíðin í fyrsta sæti, sem samþykktar voru haustið 2025 og ein þeirra sem sett var í forgang í samráði við skólastjórnendur.
Öryggi í víðasta skilningi
- Öruggt náms- og starfsumhverfi er forsenda þess að nemendur og starfsfólk geti sinnt námi og starfi af heilindum. Í tillögunni er öryggi skilgreint í víðum skilningi og tekur meðal annars til verndar gegn áreitni, ofbeldi og annarri óásættanlegri hegðun. Jafnframt er horft til aðgengis og öryggis skólahúsnæðis og skólalóða, skýrrar ábyrgðarskiptingar, teymisvinnu og markvissra ferla um samskipti og viðbrögð.
- Í nóvember 2025 var skipað sérfræðiteymi um vinnu við viðbragðsáætlunina. Í teyminu sátu skólastjórnendur og starfsfólk menntasviðs og jafnframt var haft víðtækt samráð við verkefnastjóra miðlægs bráða- og viðbragðsteymis höfuðborgarsvæðisins (Púlsinn), lögregluna á stöð 3 í Kópavogi og samfélagslögreglu. Þá heimsóttu starfsmenn menntasviðs alla grunnskóla bæjarins til samráðs við starfsfólk og funduðu með forstöðumönnum frístunda og félagsmiðstöðva.
- Lögð er rík áhersla á virka þátttöku starfsfólks í mótun sameiginlegra viðmiða, eflingu faglegs trausts og markvissa eftirfylgni með umbótum, með það að leiðarljósi að skapa jákvæða skólamenningu sem styður við vellíðan allra sem starfa og læra í grunnskólum Kópavogs.
Viðbragðsáætlun