Prestur í pítsahimnaríki

Sr. Guðni Már Harðarson
Sr. Guðni Már Harðarson
Viðmælandinn í Kópavogssögunum er séra Guðni Már Harðarson hefur staðið við altarið í Lindakirkju í átján ár. Hann var táningur þegar hann ákvað að verða prestur, beygir stundum af við útfarir og er með árskort í sundi.
 
„Ég hef átt tvær fasteignir um ævina og báðar í Kópavogi. Maður verður fljótt stoltur af því að vera Kópavogsbúi og það sýndi sig strax að við vorum flutt í nýjan bæ þegar við fengum inn um lúguna Kópavogspóstinn, Kópavogsblaðið og fleira gott um Kópavog. Ég fann hversu gott það er að vera í Kópavogi og hversu vel samfélagið tekur vel utan um mann.