Sæktu um í Vinnuskóla Kópavogs

Starfsmenn Vinnuskólans í Kópavogi að störfum
Starfsmenn Vinnuskólans í Kópavogi að störfum
Opnað hefur verið fyrir umsóknir í Vinnuskóla Kópavogs. Vinnuskólinn er fyrir þá Kópavogsbúa sem eru á aldrinum 14 – 17 ára. Umsóknarfrestur er til 5. maí. Eins og undanfarin ár er stefnt að því að veita öllum umsækjendum vinnu. 
Helstu verkefnin eru snyrting og fegrun bæjarins en elstu unglingunum býðst einnig að vinna við aðstoðarstörf hjá ýmsum stofnunum og félögum í bænum.
 
Skilyrði er að umsækjendur séu með lögheimili í Kópavogi.
Sæktu um starf hjá Vinnuskóla Kópavogs.