Sala á húsnæði bæjarskrifstofa

Fannborg 2 hýsti Bæjarskrifstofur Kópavogs til ársins 2017.
Fannborg 2 hýsti Bæjarskrifstofur Kópavogs til ársins 2017.

Bæjarráð Kópavogs samþykkti í morgun að leggja til við bæjarstjórn að gengið yrði til samninga við Stólpa ehf. vegna sölu á Fannborg 2,4, og 6. Húseignir bæjarins að Fannborg 2, 4 og 6 voru auglýstar til sölu í ágústlok og var gefinn frestur til að skila tilboðum til 12. október.

Fjögur tilboð bárust. Tilboð Stólpa ehf. hljóðar upp á 1.050.000.000 kr. , einn milljarð og 50 milljónir.

Bæjarskrifstofur Kópavogs hafa verið til húsa í Fannborg 2,4 og 6. Þorri hluti starfseminnar er nú fluttur að Digranesvegi 1. Bærinn festi kaup á því húsnæði fyrir 585 milljónir í mars 2016.