Samningar við BSRB í höfn

Verkfallsaðgerðum BSRB aflýst.
Verkfallsaðgerðum BSRB aflýst.

Samningar eru í höfn milli BSRB og viðsemjenda þeirra, þar með talið Sambands íslenskra sveitarfélaga. Verkfalli hefur því verið aflýst.

Starfsmannafélag Kópavogs, SFK, er aðildarfélag BSRB og munu því starfsmenn í SFK mæta til vinnu í dag. 

Enn er ósamið við Eflingu og hefst ótímabundið verkfall starfsmanna Eflingar kl. 12.

Upplýsingar um áhrif þess á starfsemi Kópavogsbæjar verða settar inn á vef Kópavogsbæjar síðar í dag, mánudaginn 9. mars.