Samráðsgátt um innleiðingu Heimsmarkmiða SÞ

Samráðsgátt um innleiðingu Heimsmarkmiða Sameinuðu þjóðanna í Kópavogi hefur verið opnuð.
Samráðsgátt um innleiðingu Heimsmarkmiða Sameinuðu þjóðanna í Kópavogi hefur verið opnuð.

Opnuð hefur verið samráðsgátt fyrir íbúa Kópavogsbæjar um innleiðingu Heimsmarkmiða Sameinuðu þjóðanna um sjálfbæra þróun. Í samráðsgáttinni er hægt að koma á framfæri ábendingum um áherslur við innleiðingu á hverju markmiði fyrir sig.

 „Þátttaka íbúa við innleiðingu Heimsmarkmiða Sameinuðu þjóðanna er mikilvægur þáttur í því að innleiðing markmiðanna takist vel til. Við höfum verið að auka áherslu á íbúasamráð og þátttöku almennings, og er samráðsgáttin liður í því,“ segir Ármann Kr. Ólafsson bæjarstjóri Kópavogs.

 

Bæjarstjórn Kópavogs samþykkti að innleiða Heimsmarkmið Sameinuðu þjóðanna í nýrri stefnu bæjarins. Stefnan samanstendur af hlutverki, framtíðarsýn og gildum auk yfirmarkmiða úr Heimsmarkmiðum Sameinuðu þjóðanna. Kópavogur er fyrsta sveitarfélagið á Íslandi til að innleiða Heimsmarkmið Sameinuðu þjóðanna með formlegum hætti.

 

Markmiðið með stefnunni er að tryggja lífsgæði íbúa Kópavogs og taka um leið þátt í átaki þjóða heims um innleiðingu Heimsmarkmiða Sameinuðu þjóðanna..

 

Heimsmarkmið Sameinuðu þjóðanna um sjálfbæra þróun samanstanda af sautján markmiðum sem mynda jafnvægi milli þriggja stoða sjálfbærrar þróunar; hinnar efnahagslegu, félagslegu og umhverfislegu. Þá fela þau einnig í sér fimm meginþemu sem eru mannkynið, jörðin, hagsæld, friður og samstarf.

 

Íbúar eru hvattir til að koma sínum sjónarmiðum á framfæri og hafa þannig áhrif á innleiðingu Heimsmarkmiðanna.

Smelltu hér til að fara á samráðsgátt

Smelltu hér fyrir nánari upplýsingar