Símamótið í Kópavogi

Þátttakendur í Kópavogsdal.
Þátttakendur í Kópavogsdal.

Símamótið í Kópavogi fer fram dagana 13.-16.júlí 2023.

Símamótið er stærsta fótboltamót ársins og raunar fjölmennasti íþróttaviðburður ársins en yfir þrjú þúsund stelpur taka þátt.

Mótið hefur verið haldið í Kópavogi frá árinu 1985 og verður þetta því í 39. skipti sem mótið er haldið. Símamótið er fyrir stúlkur í 7. til 5. flokki auk þess sem stúlkum í 8.flokki gefst kostur á að taka þátt í Litla Símamótinu.

Mótið fer fram bæði í Kópavogsdal og Fagralundi í Fossvogsdal og hefur Breiðablik veg og vanda af skipulagningu þess.

Nánar um Símamótið