Gestir ásamt Ásdísi Kristjánsdóttur bæjarstjóra.
Bæjarstjóri Kópavogs bauð íbúum Kópavogs sem verða sjötugir árið 2026 í boð sem fram fór í Salnum í Kópavogi miðvikudaginn 4.febrúar.
Á þriðja hundrað Kópavogsbúar mættu og voru fagnaðarfundir hjá gömlum skólasystkinum, bæði úr Kópavogi og víðar að af landinu. Þetta er í annað sinn sem sjötugum Kópavogsbúum er boðið í móttöku og var almenn ánægja með framtakið.
Ásdís Kristjánsdóttir bæjarstjóri tók á móti gestum, flutti stutt ávarp og óskaði gestum til hamingju með afmælisárið.
Fleiri myndir úr boði eru á Facebook-síðu Kópavogsbæjar
