Sorphirðudagatal fyrir árið 2014

Sorphirðudagatal Kópavogs fyrir árið 2014 hefur nú litið dagsins ljós. Hægt er að nálgast það með því að smella á slóðina neðst í fréttinni. Litapunktar sýna á hvaða dögum tunnur eru tæmdar í viðkomandi hverfum. Athugasemdir eða ábendingar skulu berast áhaldahúsi Kópavogs í síma 570 1660.

Grenndargámar eru á nokkrum stöðum í bænum og er þar hægt að flokka fernur, dagblöð og tímarit. Hægt er að sjá staðsetningu þeirra á sorphirðudagatalinu.

Þess má að lokum geta að endurvinnslustöðvar Sorpu eru við Dalveg 1 og Jafnarsel 8. Þær taka á móti úrgangi alla daga vikunnar.