Skólar, leikskólar og frístund lokuð 16.mars

Starfs- og skipulagsdagur verður í skólum á höfuðborgarsvæðinu mánudaginn 16.mars.
Starfs- og skipulagsdagur verður í skólum á höfuðborgarsvæðinu mánudaginn 16.mars.

Skólahald takmarkað tímabundið vegna COVID-19.

Heilbrigðisráðherra ákveðið að virkja heimildir sóttvarnalaga sem felur meðal annars í sér að skólahald verður takmarkað tímabundið. Nánari útfærslur verða unnar samkvæmt tilmælum stjórnvalda.

Sveitarfélögin á höfuðborgarsvæðinu vinna nú að skipulagningu skólastarfs miðað við ofangreindar ákvarðanir. Þegar hefur verið ákveðið að mánudaginn 16.mars verði starfsdagur í grunn- og leikskólum á höfuðborgarsvæðinu til þess að stjórnendur og starfsmenn grunn- og leikskóla geti skipulagt skólastarfið sem best á þessu tímabili sem takmörkunin nær til.

Foreldrar leik- og grunnskólabarna eru beðnir um fylgjast vel með upplýsingum sem birtast munu um helgina og á mánudaginn meðal annars á heimasíðum sveitarfélaganna og heimasíðum grunn- og leikskóla. Þá eru í undirbúningi sameiginlegar leiðbeiningar sveitarfélaga á höfuðborgarsvæðinu um frístundaheimili, íþróttastarf, íþróttamannvirki, skólahljómsveitir, og aðrar tómstundir barna.