Stóra upplestrarkeppnin

Þátttakendur í lokahátíð Stóru upplestrarkeppninnar ásamt bæjarstjóra Kópavogs, Ásdísi Kristjánsdót…
Þátttakendur í lokahátíð Stóru upplestrarkeppninnar ásamt bæjarstjóra Kópavogs, Ásdísi Kristjánsdóttur.

Finnbogi Birkis Kjartansson frá Kópavogsskóla sigraði Stóru upplestrarkeppnina í Kópavogi, í öðru sæti var Kristín Edda Hlynsdóttir frá Snælandsskóla og í þriðja sæti var Agnes Elín Davíðsdóttir úr Salaskóla.

Lokahátíð Stóru upplestrarkeppninnar í Kópavogi fór fram í Salnum fimmtudaginn 13. apríl. Keppnin haldin í 26. sinn í Kópavogi en keppnin á 27 ára afmæli í ár. Stóra upplestrarkeppnin er ávallt sett á Degi íslenskrar tungu, þann 16. nóvember og markmið hennar er að vekja athygli og áhuga í skólum á vönduðum upplestri og framburði. Úrslitakeppnir í skólum bæjarins eru svo haldnar í mars.

Í Salnum komu saman tveir fulltrúar frá öllum níu grunnskólum bæjarins og lásu þau hluta úr sögunni Blokkin á heimsenda eftir Arndísi Þórarinsdóttur og Huldu Sigrúnu Bjarnadóttur. Því næst völdu nemendur eitt af tíu ljóðum eftir Aðalstein Ásberg Sigurðsson og að lokum fluttu þau ljóð að eigin vali.

Inn á milli upplestra fluttu nemendur úr Skólahljómsveit Kópavogs fallega tónlist og allir þátttakendur fengu viðurkenningar, bók og blóm að gjöf.

Allir lesarar stóðu sig með mikilli prýði og mjög erfitt var fyrir dómara að gera upp á milli þeirra. Það er því ljóst að nemendur í Kópavogi hafa staðið sig afar vel í ræktunarhluta keppninnar í skólunum áður en til lokahátíðarinnar kom.