Stóra upplestrarkeppnin í Kópavogi

Sigurvegara í Stóru upplestrarkeppninni í Kópavogi.
Sigurvegara í Stóru upplestrarkeppninni í Kópavogi.

Nói Pétur Á. Guðnason úr Lindaskóla sigraði Stóru upplestrarkeppnina í Kópavogi, í öðru sæti var Mír Salah Karim, einnig úr Lindaskóla og í þriðja sæti var Salka Heiður Högnadóttir úr Smáraskóla.

Lokahátíð Stóru upplestrarkeppninnar í Kópavogi fór fram í Salnum fimmtudaginn 15. mars sl.

Stóra upplestrarkeppnin var haldin í 21. sinn í Kópavogi í ár. Keppnin er ávallt sett á Degi íslenskrar tungu þann 16. nóvember og markmið hennar er að vekja athygli og áhuga í skólum á vönduðum upplestri og framburði.

Keppnin snýst fyrst og fremst um að allir nemendur hafa lagt markvissa rækt við einn þátt móðurmálsins, þ.e. vandaðan upplestur og framburð og tekið þátt í að lesa upp, sjálfum sér og öðrum til ánægju.

Í Salnum komu saman tveir fulltrúar frá öllum 9 grunnskólum bæjarins og lásu hluta úr sögunni Strokubörnin á Skuggaskeri eftir Sigrúnu Eldjárn. Því næst völdu nemendur eitt af tíu ljóðum eftir Ólaf Jóhann Sigurðsson og að lokum fluttu þau ljóð að eigin vali.

Nemendur úr Skólahljómsveit Kópavogs fluttu fallega tónlist og Ármann Kr. Ólafsson, bæjarstjóri Kópavogs ávarpaði samkomuna og veitti viðurkenningar.

Allir lesararnir stóðu sig með mikilli prýði og mjög erfitt var fyrir dómara að gera upp á milli þeirra. Það er því ljóst að nemendur í Kópavogi hafa staðið sig afar vel í ræktunarhluta keppninnar í skólunum áður en til lokahátíðarinnar kom.