Stóri plokkdagurinn

Stóri plokkdagurinn er 24.apríl 2022.
Stóri plokkdagurinn er 24.apríl 2022.

Kópavogsbær tekur þátt í Stóra plokkdeginum sem haldinn er sunnudaginn 24.apríl. Hægt verður að nálgast ruslapoka og einnota hanska í Þjónustumiðstöð Kópavogs, Askalind 5, á föstudeginum 22. apríl og laugardaginn 23. apríl.

Plokkdaginn sjálfan er hægt að hringja í númer 618 8550 frá kl. 12-18 til að tilkynna um staðsetningu fullra poka, en þess er óskað að reynt verði að safna sem flestum pokum á sama stað, sem auðvelt aðgengi er að svo sem á bílastæðum eða gangstéttarbrúnum o.s.frv.

Þá má senda póst á Þjónustumiðstöð Kópavogs til að tilkynna staðsetningu poka, sem verða þá sóttir eftir helgi, netfang thjonustumidstod (hja) kopavogur.is .
Plokkdagurinn er haldinn á degi umhverfisins. Þetta er í fimmta sinn sem félagsskapurinn Plokk á Íslandi stendur fyrir átakinu.

Að plokka gefur fólki tækifæri til að sameina útiveru og hreyfingu sem og að sýna umhverfinu og samfélaginu kærleik í verki. Að plokka fegrar umhverfi okkar og náttúru.

PLOKKTRIXIN Í BÓKINNI – Góð ráð frá Plokk á Íslandi.

1. Finna sér svæði til að plokka á og hvetja fjölskylduna til að taka þátt.
2. Stofna viðburð eða tengja sig inn á stofnaðan viðburð.
3. Útvega sér ruslapoka, hanska og plokktöng.
4. Klæða sig eftir aðstæðum.
5. Koma afrakstrinum á viðeigandi stofnun.
6. Hringja eða senda tölvupóst á sveitarfélagið sitt og láta sækja ef magnið er mikið.
7. Gæta fyllstu varúðar og brýna fyrir börnum að láta nálar og aðra hættulega hluti vera, en tilkynna til foreldra eða umsjónarmanna svo mögulegt sé að fjarlægja þá.