Styrkir til jafnréttis- og mannréttindaverkefna

Óskað eftir umsækjendum
Óskað eftir umsækjendum

 Jafnréttis- og mannréttindaráð Kópavogs auglýsir eftir umsóknum um styrki til einstakra verkefna sem hafa framgang mannréttinda og jafnréttis í Kópavogi að markmiði. 

Verkefni geta verið samstarfs- eða þróunarverkefni, námskeið, þróun námsefnis, útgáfa o.s.frv.  Styrkir eru veittir einstaklingum, stofnunum og hagsmunasamtökum eða öðrum hópum.  Heildarúthlutun er 400.000 kr.

Umsóknum skal skila eigi síðar en 16. október 2018 til:  Jafnréttisráðgjafa, Digranesvegi 1, 200 Kópavogur eða asakr@kopavogur.is á eyðublaði sem nálgast má hjá jafnréttisráðgjafa.

f.h. jafnréttis- og mannréttindaráðs

Ása A. Kristjánsdóttir jafnréttisráðgjafi.