Styrkir jafnréttis- og mannréttindaráðs

Jafnréttis- og mannréttindaráð Kópavogs auglýsir styrki til umsóknar.
Jafnréttis- og mannréttindaráð Kópavogs auglýsir styrki til umsóknar.

Jafnréttis- og mannréttindaráð Kópavogs auglýsir eftir umsóknum um styrki til verkefna sem hafa framgang mannréttinda og jafnréttis í Kópavogi að markmiði.  Styrkir eru veittir einstaklingum, stofnunum, hagsmunasamtökum eða öðrum hópum. Heildarúthlutun er 400.000 kr. Umsóknum skal skila rafrænt eigi síðar en 12. október 2020 til jafnréttisráðgjafa á netfangið asakr (hja) kopavogur.is