Styrkir til fólks með fötlun

Logo Kópavogs
Logo Kópavogs

Styrkir vegna námskostnaðar og verkfæra- og tækjakaupa fólks með fötlun

Kópavogsbær vekur athygli á rétti fólks til að sækja um styrki skv. 27. grein laga um málefni fatlaðs fólks. Bænum er heimilt að veita styrk til greiðslu námskostnaðar sem ekki er greiddur samkvæmt ákvæðum annarra laga, enda teljist námið hafa gildi sem hæfing eða endurhæfing. Einnig er heimilt að veita þeim sem eru 18 ára og eldri styrk til verkfæra- og tækjakaupa vegna heimavinnu eða sjálfstæðrar starfsemi, enda teljist starfsemin hafa gildi sem félagsleg hæfing eða endurhæfing sem miði að því að auðvelda fötluðu fólki að skapa sér atvinnu.

Umsóknir skulu berast á þar til gerðu eyðublaði ásamt greinargerð til þjónustuvers Kópavogsbæjar, Digranesvegi 1, 200 Kópavogur. Eyðublaðið má nálgast í þjónustuveri Kópavogsbæjar eða á vef bæjarins, www.kopavogur.is.

 Umsóknarfrestur er til og með 15. október 2018 og hefur þar með verið framlengdur.