Styrkir úr lista- og menningarsjóði

Menningarhúsin í Kópavogi.
Menningarhúsin í Kópavogi.

Árlega styrkir Kópavogsbær einstaklinga, hópa og hátíðir úr lista- og menningarsjóði bæjarins.

Lista- og menningarráð Kópavogsbæjar auglýsir nú eftir umsóknum um styrki úr lista- og menningarsjóði vegna verkefna á næsta ári. Umsóknum skal skila fyrir 18. nóvember 2019.

Hlutverk sjóðsins er að efla menningarlífið í Kópavogi í samræmi við menningarstefnu bæjarins. Styrkir eru veittir til einstaklinga, listhópa, félagasamtaka, fyrirtækja og stofnana og til almennrar menningarstarfsemi eða verkefna á sviði lista, hönnunar eða arkitektúrs, sem eru í samræmi við menningarstefnu Kópavogsbæjar. Umsækjendur um styrki verða að sýna fram á gildi verkefnisins fyrir lista- og menningarlífið í Kópavogi, getu til að hrinda verkefninu í framkvæmd og leggja fram skýra fjárhagsáætlun. Við úthlutunina verður sérstaklega litið til umsókna sem tengjast annað hvort Heimsmarkmiðunum eða Barnasáttmála Sameinuðu þjóðanna. Lista- og menningarráð fer yfir umsóknir og afgreiðir þær fyrir árslok. 

Nánari upplýsingar veitir Soffía Karlsdóttir, forstöðumaður menningarmála í Kópavogi, í gegnum netfangið: soffiakarls@kopavogur.is

Sótt er um styrkinn á þjónustugátt.