Sumar í Kópavogi

Sumar í Kópavogi
Sumar í Kópavogi

Á sumarvef Kópavogsbæjar er að finna fjölbreytt og skemmtileg frístunda, - leikja - og íþróttanámskeið fyrir börn á aldrinum 6 til 16 ára. Námskeið á vegum Kópavogsbæjar verða meðal annars, smíðavöllur, sjávaríþróttir Kópaness, sumarsmiðjur í félagsmiðstöðvum og skólagarðar.

Götuleikhús Kópavogs og Skapandi sumarstörf er atvinnutengt unglinga - og ungmennastarf og munu þau glæða bæinn leik- og tónlistarlífi með ýmsum hætti.

Fyrir börn og ungmenni með fötlun eru annars vegar sumarnámskeið í frístundaklúbbnum Hrafninum fyrir börn á aldrinum 7 til 16 ára með tengingu við Vinnuskóla Kópavogs fyrir unglinga. Atvinnutengt frístundaúrræði er fyrir ungmenni með fötlun á aldrinum 17 til 25 ára og fer það fram í Tröð.

Helstu nýjungar í kynningarefni á sumarvefnum eru Parkour námskeið og Trampólín námskeið á vegum Gerplu, sumarnámskeið á vegum Rauða krossins og námskeið í sumarbúðum skáta á Úlfljótsvatni.

Undir hnappnum “Önnur námskeið” er einnig að finna fjölbreytt sumarnámskeið á vegum íþróttafélaga í Kópavogi og annarra tómstunda- og félagasamtaka. Nánari upplýsingar um námskeiðin, skráningar og tengiliði er að finna á kynningarsíðum á sumarvefnum.

Verið velkomin í litríkt sumarstarf í Kópavogi!

Sumarvefur Kópavogs