Sundlaugar opnar í samkomubanni

Sundlaugar í Kópavogi verða opnar í samkomubanni, eins og aðrar laugar á höfuðborgarsvæðinu.
Sundlaugar í Kópavogi verða opnar í samkomubanni, eins og aðrar laugar á höfuðborgarsvæðinu.

Sundlaugar á höfuðborgarsvæðinu verða opnar í samkomubanni. 

Farið verður að tilmælum almannavarna um fjöldatakmarkanir en fækka þarf skápum sem eru í notkun vegna fjarlægðarreglna. Þá verður takmörkuð nýtingin á hankdlæðarekkum og sömuleiðis nýting á sturtum.

Búast má við fjölgun heimsókna frá börnum vegna skerðingar á skóla og frístundastarfi. Sundæfingar verði ekki leyfðar til 23. mars samanber tilmæli ÍSÍ. Sundleikfimi eldri borgara verður felld niður.

Aukin þrif verða í sundlaugunum, starfsfólk lauganna mun spritta og þrífa snertifleti reglulega, bekki, borð, skápa, lykla, sápuskammtara, salerni og þess háttar. Þá verða gestir beðnir um að passa upp á fjarlægðartilmæli sóttvarnarlæknis um tveggja metra bil sín á milli  í búningsklefum, sturtum og pottum.

Ákvarðanir varðandi opnun sundlauganna verða endurskoðaðar eftir því sem fram líður og metið hvernig til hefur tekist út frá sóttvarnarsjónarmiðum