Skilafrestur framboðslista er 10.apríl

Kosið verður 16.maí 2026
Kosið verður 16.maí 2026

Þann 10. apríl næstkomandi kl. 12.00 rennur út frestur til að skila framboðslistum vegna sveitarstjórnarkosninga í Kópavogi þann 16. maí 2026.

Yfirkjörstjórn mun þá taka á móti framboðslistum á skrifstofu Kópavogsbæjar að Digranesvegi 1, 1. hæð milli kl. 10.00 og 12.00. Framboðslistum skal skilað á tölvutæku formi. Meðmælendalistum skal skilað í gegnum rafrænt meðmælakerfi á island.is

Yfirkjörstjórn boðar til fundar mánudaginn 13. apríl kl. 12.00 á skrifstofu Kópavogsbæjar að Digranesvegi 1, 1. hæð þar sem hún úrskurðar um framkomna framboðslista að viðstöddum umboðsmönnum listanna.

Þegar yfirkjörstjórn hefur úrskurðað um framboðin mun hún auglýsa framboðslista á heimasíðu Kópavogsbæjar og í bæjarblöðunum, bókstaf listanna og nöfn frambjóðenda á hverjum lista í réttri röð.

 Meira um sveitarstjórnarkosningar 2026